Mikill heiður féll fyrirtækinu í skaut þann 27. apríl. sl., er það fékk Hvatningarverðlaun Kópavogs, en þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Í umsögn með verðlaununum segir „Ræs ehf., í eigu Helgu Guðrúnar Gunnarsdóttur, býður upp á þjálfun í vatni með áherslu á að þjóna einstaklingum sem eru komnir um og yfir miðjan aldur. Þetta eykur verulega valmöguleika í heilsueflingu og þá ekki síst fyrir eldri aldurshópa.
Námskeið Helgu Guðrúnar í Sundlaug Kópavogs hafa notið mikilla vinsælda. Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs afhenti Helgu Guðrúnu viðurkenningu og blóm í blíðskaparveðri á sundlaugabarminum í dag við mikinn fögnuð þátttakenda.
Hugmyndin með verðlaununum er að veita viðurkenningu fyrirtæki í Kópavogi sem hefur með starfsemi sinni stuðlað að heilsueflingu Kópavogsbúa.
Hvatningarverðlaun Kópavogs eru mikilvægur liður í innleiðingu lýðheilsustefnu bæjarins.
Auglýst var eftir tilnefningum fyrr á þessu ári og var samdóma álit dómnefndar, sem skipuð var stýrihóp lýðheilsumála í Kópavogi, að veita Ræs ehf. verðlaunin."